Ný bók eftir Elisabeth Kartchner einn vinsælasta skrappara og skrappvöruhönnuð í USA í dag. Elisabeth var valin skrappari ársins 2007 af hinu virta skrapptímariti Creating Keepsakes og síðan hefur leið hennar legið stöðugt uppávið í heimi skrapps og föndurs. Í þessari bók fær hún til liðs við sig nokkra vinsæla hönnuði s.s Keisha Campell o.fl. og útkoman er aldeilis frábær. Þessi bók er endalaus innblástur til góðra verka í skrappinu.