Mjög góð skæri frá EK Success sem eru spesíalistar í skærum og skerum. Lítil og nett og með góðum oddi sem hentar vel til að klippa út fíngert skraut. Þessi skæri eru með titanium húð sem gerir þau súpergóð til að klippa hvaða föndurpappír sem er með góðum árangri. Létt og þægileg í hendi og auk þess fylgir með hlíf til að geyma skærin í til að vernda fíngerðan oddinn fyrir hnjaski.