Lýsing
Dear Lizzy línan frá American Crafts er hönnuð af Elisabeth Kartchner sem er einn af þekktustu hönnuðum skrappheimsins í dag. Hún var kosin skrappari ársins 2007 af Creating Keppsakes og hefur skrifað reglulega pistla í það blað fram til þessa og einnig gefið út sína eigin bók um scrapbooking (52 More Scrapbooking Challenges sem er að sjálfsögðu til hjá okkur). Þessi fyrsta skrapplína sem hún sendir frá sér í samvinnu við AC er leikandi létt og glaðleg, fullkomin fyrir allt það skemmtilegasta sem hægt er að skrappa um. Stærð pappírsins er 12x12 og með munstri á framhlið en einlitri bakhlið sem tónar við framhliðina.