Sparipappírinn frá Basic Grey er Rollsinn í pappírum, yndislega léttur og útskorinn með lasertækni og maður notar bara í rauninni lítinn hluta af honum í hverja síðu eða kort. Auðvitað er ekki bannað að nota síðuna óklippta ef maður getur engan veginn hugsað sér að klippa dýrðina í sundur!