Lýsing
We R Memory Keepers þriggja hringja albúm með 10 plöstum. Albúmið er klætt með vönduðu indversku hörefni og með styrktarhornum úr málmi. Albúmið er fóðrað með mjúkri fyllingu undir efninu svo það er mjúkt viðkomu auk þess sem það gerir efnið slitsterkara þar sem það er ekki strekkt á pappann sjálfan. Málmrammi á kilinum til að setja merkingu t.d. ártal e.þ.h.Sérstaklega fallegt og vandað albúm sem fer vel í hillu og þolir að vera skoðað árum saman. Þetta er með vandaðri albúmum á markaðnum í dag.